01.12.2011 14:18
Þökkum stuðninginn!
Þökkum öllum þeim sem styrktu skátana okkar með kaupum á jólavörum á
Landsmót skáta næsta sumar á Úlfljótsvatni í tilefni 100 ára afmæli skátastarfs
á Íslandi.
12.11.2011 12:24
Skátar að fjárafla
Skátar frá
tíu ára og upp úr í fjáröflun fyrir Landsmóti skáta 2012
Nú eru 26
skátar að safna sér fyrir Landsmóti skáta næsta sumar. Þeir eru að selja
allskonar jólavarning, meðal annars margnota bökunarpappír, jólakaffi frá
Kaffitári, jólapakkningar sem innihalda
jólapappír, hnotur, merkispjöld og límband og jóladagatöl!
Við hvetjum
alla til að taka vel á móti þeim.
22.10.2011 15:22
Ferð í Maríuhella
Dagsferð drekaskáta var í dag, laugardag 22. október. Farið var í
Maríuhella í Heiðmörk. Fjölmennt var af skátum, foreldrum og systkinum.
Hellarnir á svæðinu voru skoðaðir, hitað kakó yfir eldi, grillað kanilhækbrauð
og að lokum vígt fimm nýja drekaskáta inn í sveitina. Við þökkum kærlega fyrir
daginn!
Myndir eru komnar inn undir myndaalbúm.
27.09.2011 22:38
Flottur foreldrafundur!
Frábær
foreldrafundur fór fram í Árbúaheimilinu í kvöld þar sem var vel mætt af
foreldrum/forráðamönnum skáta í félaginu.
Meðal þess
sem var farið yfir á fundinum var að hver sveit kynnti sitt sveitarstarf, stjórnin
kynnti sig, sagt var frá hvernig nýja skátaaðferðin mun koma inn í sveitarstarfið,
flott kynning frá Landsmótsstjórn á Landsmóti næsta sumar og farið var yfir
fjáröflunarfyrirkomulag fyrir Landsmótið. Að lokum gæddu flestir sér að vöfflum
og spjölluðu saman.
Ef einhverjir
foreldrar sáu sér ekki fært að mæta í kvöld en vilja afla sér einhverra
upplýsinga um þetta hafið þá samband við starfsmann á arbuar(hjá)skatar.is
25.09.2011 17:34
Foreldrafundur þriðjudaginn 27.september
Kæru skátar
og foreldrar/forráðamenn þeirra,
Næstkomandi
þriðjudag, þann 27. September klukkan 19:30 verður haldinn foreldrafundur hjá
Árbúum. Á foreldrafundinum verður farið yfir ýmis atriði hvað varðar komandi
starfsvetur.
Meðal þess sem verður farið yfir er:
- Starfandi stjórn skátafélagins kynnir sig.
- Allir sveitaforingjar munu kynna sig og sína starfsáætlun fyrir önnina.
- Sagt verður frá þeim breytingum sem nýja skátaaðferðin, sem verið er að taka upp, hefur á starf hverrar sveitar.
- Kynning frá landsmótsstjórn á Landsmóti 2012.
- Rætt verður um fjáraflanir fyrir Landsmót 2012.
- Önnur mál, umræður og spurningar.
Þannig að
það verður sagt frá mikið af nýjum og mikilvægum hlutum og er það von okkar að
einhver frá hverjum skáta sjái sér fært að mæta.
Léttar
veitingar verða í boði hússins.
Skátakveðja,
Stjórn og
sveitaforingjar Árbúa
22.09.2011 15:37
Frístundakortið er komið inn!
Allir þeir
sem hafa lögheimili í Reykjavík og hafa endurnýjað skráninguna sína í félagið
fyrir starfsveturinn 2011-2012 geta nú farið og úthlutað félagsgjaldinu á Árbúa
í gegnum frístundakort Reykjavíkurborgar.
Við minnum á
að greiða þarf annargjaldið fyrir 2.október!
Ef þið
viljið greiða með frístundakrotinu en skátastarfið kemur ekki upp eruð þið
beðin um að hafa samband við starfsmann á arbuar@skatar.is
08.09.2011 12:34
Haustið 2011
Allar sveitir eru nú komnar á fullt eftir frábæra byrjunarviku!
Fundartímar í skátaheimilinu eru eftirfarandi:
Setustofa byrjar 15.september.
September er kynningarmánuður og býðst þá þeim sem hafa ekki kynnst skátastarfi áður að koma á 1 kynningarfund og prófa skátana áður en þeir skrá sig formlega og gera upp önnina.
Skráningarhnappur er hér til vinstri á heimasíðunni. Mikilvægt er að allir skrái sig í skátastarfið, nýjir eða gamlir. Þetta er gert til þess að tryggja að allar upplýsingar um viðkomandi skáta séu réttar og uppfærðar. Þú getur einnig skráð þig hér.
30.08.2011 15:55
Árbúar fara á fullt!
Nú er skátastarfið að fara á fullt á ný!
Skráningarhnappur er kominn inn á heimasíðuna okkar og við biðjum alla um að fara inn á hana og skrá sig. Nauðsynlegt er að allir skrái sig, hvort sem þeir voru í starfi í vetur eða eru nýir. Þetta er gert til þess að tryggja að allar upplýsingar um viðkomandi skáta séu réttar og uppfærðar. Þú getur einnig skráð þig hér.
Fundartímar sveita eru alveg að verða komnir á hreint. Allir fundir hefjast í vikunni 5. -9.september.
Drekaskátar: þriðjudaga klukkan 17:15-18:30. Fyrsti fundur 6. september.
Fálkaskátar yngri: miðvikudaga klukkan 17:00-18:30. Fyrsti fundur 7. september.
Fálkaskátar eldri: miðvikudaga klukkan 17:00-18:30. Fyrsti fundur 7. september.
Dróttskátar: mánudagar klukkan 20:00-21:30. Fyrsti fundur 5. september.
Setustofa: annan hvern fimmtudag (líklegast) klukkan 19:30-21:30. Hefst 15. September
Rekkaskátar: miðvikudaga klukkan 20:00-21:30. Hefjast 14.september
Upplýsingar um annargjald og þess háttar er búið að uppfæra á heimasíðunni og má sjá hér.
26.08.2011 13:26
Vetrarstarfið að hefjast!
Vetrarstarfið er alveg að fara hefjast - aðeins 10 dagar í fyrsta skátafundinn!
Fundartímar fyrir nánast allar sveitir eru komnir inn á heimasíðuna okkar. Sjá hér.
Því miður eru fundartímar fálkaskáta eldri og rekkaskáta ekki alveg komnir á hreint en verða það vonandi sem fyrst.
Veturinn framundan er uppfullur af spennandi ævintýrum og verkefnum til að takast á við!
Hlökkum til að sjá ykkur öll aftur - eftir aðeins 10 daga!
Áskorun sem skátar fengust við í sumar: Að tjalda blindandi undir stjórn sjáandi manns
Spenningurinn magnast yfir því að vetrarstarfið sé að byrja!
25.08.2011 14:19
Skátafélög landsins heimsótt
Þessa
vikuna og næstu verða kynningar á nýjum foringjahandbókum fyrir skátaforingja
haldnar hjá skátafélögum um allt land. Fulltrúar frá BÍS heimsækja félögin og
fara yfir í hverju breytingarnar felast, kynna bækurnar og þann stuðning
sem félögunum stendur til boða í innleiðingunni. Útgáfuhátíð var haldin í
Skátamiðstöðinni mánudaginn 22. ágúst þar sem ríflega 80 manns mættu að kynna
sér bækurnar. Bókunum var vel tekið og margir foringjar eru orðnir spenntir að
takast á við nýjar áskoranir.
Kynningarkvöld
verður í Árbúum í kvöld, fimmtudag 25.ágúst, klukkan 20:00.
17.08.2011 12:03
Sumarið að verða búið og vetrarstarfið að hefjast á ný
Nú er sumarið
að verða búið og var það uppfullt af skátastarfi. Árbúar eru meðal annars búnir að vera að fara
á skátamót eins og Landnemamót og Alheimsmót skáta í Svíþjóð. Þeir eru einnig
búnir að halda úti Útilífsskóla skáta með góðum undirtektum.
Vetrarstarfið
hefst á ný í vikunni 5. - 9. September. Fundartímar fyrir hverja sveit fyrir
sig munu koma inn í næstu viku.
Við hlökkum
til að sjá ykkur öll aftur. Hressir skátar á Alheimsmóti skáta í Svíþjóð
![]()

Flottir Árbúar og Seglar á Landnemamóti í sumar
21.07.2011 09:38
Takk fyrir sumarið!
Á morgun er síðasti dagurinn í Útilífsskóla Árbúa þetta sumarið. Við þökkum mjög góðar viðtökur í sumar og sjáumst hress næsta sumar.
Myndir af
námskeiði þrjú koma inn í dag og af námskeiði fjögur um helgina.

![]()
03.07.2011 00:19
Námskeiði 2 lokið
11.06.2011 21:16
Fyrstu viku Útilífsskólans lokið
Flottri fyrstu viku í Útilífsskólanum lokið. Meðal þess sem var gert í þessari viku var ratleikur í Elliðaárdalnum, klifur og sig, kanó og útilega á Hafravatni. Næsta vika er ekki síður full af skemmtilegri dagskrá.
Myndir koma inn af námskeiðinu við fyrsta tækifæri.
Skráning er enn í fullum gangi á næstu námskeið sumarsins. Skráðu þig hér.
02.06.2011 21:39
Drekaskátar fara á Drekaskátamót
16 drekaskátar úr Árbúum leggja af stað á Drekaskátamót á laugardaginn. Mótið er haldið á Úlfljótsvatni og er gist í tjöldum í eina nótt. Þetta er spennandi skátamót fyrir yngstu skátana okkar.
Myndirnar eru af drekaskátamóti sumarið 2010.
Það er klárt mál að drekaskátanna okkar bíður mikið ævintýri!![]()


