Færslur: 2012 Febrúar

25.02.2012 16:49

Félagsútilega 9. - 11. mars

Helgina 9. - 11. mars verður haldin félagsútilega Skátafélagsins Árbúa. Að þessu sinni verður félagsútilegan haldin í Skorradal í skálanum Skátafelli sem er í eigu Skátafélagsins Akranes. 

Fálkaskátar og eldri fara með rútu frá skátaheimilinu á föstudagskvöldið og er mæting klukkan 19:00. Gert er ráð fyrir að skátarnir séu búnir að borða kvöldmat. 
Drekaskátar fara með rútu frá skátaheimilinu á laugardagsmorgun og er mæting klukkan 09:30. Gert er ráð fyrir að skátarnir séu búnir að borða morgunmat. 
Gert er ráð fyrir heimkomu á sunnudag um kaffileytið. 

Í útilegunni verður skipulögð dagskrá allan tímann. Við gerum ráð fyrir töluverðri útiveru og því er mikilvægt að krakkarnir mæti vel útbúnir.

Gjaldið fyrir félagsútileguna fyrir fálkaskáta og eldri er 7.500 krónur og fyrir drekaskáta 6.000 krónur (sama verð og síðastliðin tvö ár). Innifalið í því er skálagjald, rúta fram og tilbaka og matur allan tímann. Gjaldið er greitt við mætingu í skátaheimili

Athugið að skrá þarf skátann sinn hér til þátttöku á tímabilinu 24. febrúar til 4. mars.

 

20.02.2012 21:59

Aðalfundarboð skátafélagsins Árbúa

Aðalfundarboð

Aðalfundur skátafélagsins Árbúa verður haldinn:

miðvikudaginn 29. febrúar næstkomandi kl. 20:00

í skátaheimilinu Hraunbæ 123.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum félagsins:

 

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

2. Skýrsla stjórnar

3. Lagðir fram samþykktir endurskoðaðir reikningar

4. Lagabreytingar

5. Kosning aðstoðarfélagsforingja til eins árs í senn

6. Kosning eins einstaklings í stjórn til tveggja ára

7. Kosning eins skoðunarmanns

8. Önnur mál

Boðið verður upp á kaffi og með því eftir fundinn.

Reykjavík 20. febrúar 2012

 

Með von um góða mætingu

 

Fyrir hönd stjórnar Árbúa

Jón Ingi Sigvaldason

félagsforingi

 

08.02.2012 11:49

Skráðu þig á Landsmót!

Í gærkvöldi var vel mætt á kynningarfund fyrir foreldra og skáta fyrir Landsmót og nú viljum við vekja athygli á því að skráningarfrestur á mótið rennur út eftir aðeins 2 daga (á föstudaginn 10. febrúar).

Við viljum sjá ÞIG á Landsmóti svo skráðu þig hér!

Ef að einhverjir komust ekki á kynningarfundinn í gær en óska eftir upplýsingum um mótið hvetjum við ykkur til að kíkja á heimasíðu Landsmóts, www.skatamot.is og ekki hika við að hafa samband við okkur með að senda línu á arbuar@skatar.is.


03.02.2012 21:43

Landsmótsfarar fjárafla fyrir Landsmóti!

Nú eru í kringum tuttugu Landsmótsfarar að fjárafla í Árbænum fyrir Landsmóti skáta sem verður haldið á Úlfljótsvatni dagana 22. - 29. júlí næstkomandi.

Skátarnir eru að selja flatkökur, kleinur, kanilsnúða, harðfisk, tannburstasett, kúst sem er með stækkanlegu skafti og er góður til að þurrka snjóin af bílnum, klósettpappír, eldhúspappír, hina ýmsu pakka eins og pokapakka, kósýpakka, vetrarpakka fyrir bílinn.

Við hvetjum alla til þess að taka vel á móti skátunum og styrkja þá til að geta tekið þátt í þessu stóra ævintýri!


  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 50
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 116153
Samtals gestir: 26153
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:04:04