Komdu í skátana!
Vorönn 2012
Smelltu hér: Skrá sig í skátana og fylltu út upplýsingarnar um þig.
Önnin janúar til maí kostar 14.000 kr.-. Við minnum á að hægt er að nota Frístundakortið.
Þeir sem gerðu upp árgjaldið strax í upphafi haustannar fá árið á 22.000 kr.-.
Greiða þarf annargjaldið fyrir 9. febrúar!
Gert er ráð fyrir að janúar sé inntökumánuður. Þeir sem ekki hafa kynnst skátastarfi áður er boðið að koma á 1 kynningarfund áður enn þeir skrá sig formlega og gera upp önnina.
Það skal tekið fram að innifalið í annargjaldinu eru eingöngu fundirnir og það sem fram fer á þeim auk efniskostnaðar við einhverja sveitarviðburði.
Auk þeirra er á dagskrá félagsins ýmsir viðburðir svo sem dagsferðir, sveitarútilegur, kvöldvökur og félagsútilega. Þessir viðburðir eru greiddir sér og um leið og þeir fara fram, enda eru þeir mismargir og miskostnaðarsamir eftir aldri skátans. Viðburðirnir eru val hvers og eins og fara yfirleitt fram um helgar. Að sjálfsögðu verður öllu verði still mjög í hóf.
Upplýsingar um viðburði utan fundartímaverður alltaf hægt að nálgast á heimasíðunni http://arbuar.123.is