16.01.2012 10:56

Skráðu þig á Landsmót strax í dag

Landsmót skáta sumarið 2012 verður hápunkturinn á þessu skátastarfsári og ætla Árbúar að sjálfsögðu að fjölmenna. Það er því ekki seinna vænna en að fara kynna sér mótið og skrá sig!

Við hvetjum ykkur til að skrá skátana ykkar sem fyrst því það er mikilvægt fyrir okkur að vita hverjir ætla með okkur frá upphafi ásamt því að þið hafið þá möguleikann á að greiða jafnt og þétt gjaldið fram að Landsmóti, nota strax þann pening sem skátarnir eru búnir að fjárafla sér. Þú getur skráð þig HÉR!

Allar þær upplýsingar sem liggja fyrir um Landsmótið er að finna á heimsíðu mótsins; www.skatamot.is og hafa verið sendar frá okkur í tölvupóstum á alla fálkaskáta, dróttskáta og rekkaskáta.

Við hvetjum alla drekaskáta og foreldra þeirra til að kynna sér fyrirkomulag fjölskyldubúða á Landsmóti. Það er hægt hér.

07.01.2012 18:22

Fánaberar

Fjórir dróttskátar úr Árbúum, Elínrós Birta, Katrín, Hafdís Jóna og Tómas Snær, voru fánaberar í blysför/göngu að þrettándabrennu Grafarholts í gær. Eftir gönguna stóðu þeir heiðursvörð við lúðrasveitina meðan hún spilaði tvö lög fyrir mannfjöldann. Dróttskátarnir stóðu sig ákaflega vel.

Myndir úr göngunni má sjá hér.
 

05.01.2012 12:14

Árbúar fara á fullt eftir jólafrí!

Nú er skátastarfið að fara á fullt á ný eftir jólafrí! 

Ef þú hefur áhuga á því að koma í skátana getur þú skráð þig hér.

Fundartímar sveita verða á sama tíma og fyrir áramót. Allir fundir hefjast í vikunni 9. - 13. janúar.

Drekaskátar: þriðjudaga klukkan 17:15-18:30. Fyrsti fundur 10. janúar.

Fálkaskátar yngri og eldri: miðvikudaga klukkan 17:00-18:30. Fyrsti fundur 11. janúar.
Dróttskátar: mánudagar klukkan 20:00-21:30. Fyrsti fundur 9. janúar.
Setustofa: annan hvern fimmtudag klukkan 19:30-21:30. Hefst 19. janúar.

Rekkaskátar: miðvikudaga klukkan 20:00-21:30. Hefjast 11.janúar

Upplýsingar um annargjald og þess háttar er búið að uppfæra á heimasíðunni og má sjá hér.

15.12.2011 22:29

Óskum ykkur gleðilegrar hátíðar

Tæplega 100 manns mættu á jólakvöldvöku Árbúa sem haldin var í kvöld til þess að loka þessari önn af skátastarfi. Sungið var skátalög og jólalög. Fálkaskátar og dróttskátar sáu um skemmtiatriði. Drekaskátar voru búnir að undirbúa veitingar fyrir fólkið og rekkaskátarnir sáu um aðstoð við viðburðinn og varðeldinn sem tók á móti gestunum.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og þessa góðu stund. Óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegrar hátíðar og sjáumst aftur á nýju skátaári (fundir hefjast aftur í vikunni 9. til 12. janúar).

Skátakveðja,

Stjórn og foringjar Árbúa


04.12.2011 16:10

Fálkaskátar gera stoka

Fálkaskátar voru umhverfisvænir í lok nóvember og gerðu Stoka á fundi til þess að nota við ýmis tækifæri.



Sumir voru mjög hugmyndaríkir og gerðu jólasveinahúfur úr afgangsbútunum.

01.12.2011 14:26

Jólakvöldvaka 15.desember

Við vekjum athygli ykkar á því að fimmtudaginn 15. desember verður haldin jólakvöldvaka til að loka haustönninni árið 2011.

Það eru allir velkomnir á kvöldvökuna! Til dæmis starfandi og gamlir skátar, foreldrar, amma og afi, systkini, vinir og vandamenn.

Kvöldvakan mun hefjast klukkan 19:30 og verður haldin í sal Skátamiðstöðvarinnar, Hraunbæ 123 (hinum megin í húsinu). Að lokinni kvöldvöku verður svo boðið upp á veitingar í Árbúaheimilinu.

Við hvetjum alla til þess að taka kvöldið frá og eiga góða stund með okkur.

 

Skátakveðja,

Stjórn og sveitaforingjar Árbúa


01.12.2011 14:18

Þökkum stuðninginn!

Þökkum öllum þeim sem styrktu skátana okkar með kaupum á jólavörum á Landsmót skáta næsta sumar á Úlfljótsvatni í tilefni 100 ára afmæli skátastarfs á Íslandi.

12.11.2011 12:24

Skátar að fjárafla

Skátar frá tíu ára og upp úr í fjáröflun fyrir Landsmóti skáta 2012

Nú eru 26 skátar að safna sér fyrir Landsmóti skáta næsta sumar. Þeir eru að selja allskonar jólavarning, meðal annars margnota bökunarpappír, jólakaffi frá Kaffitári,  jólapakkningar sem innihalda jólapappír, hnotur, merkispjöld og límband og jóladagatöl!

Við hvetjum alla til að taka vel á móti þeim. 



22.10.2011 15:22

Ferð í Maríuhella

Dagsferð drekaskáta var í dag, laugardag 22. október. Farið var í Maríuhella í Heiðmörk. Fjölmennt var af skátum, foreldrum og systkinum. Hellarnir á svæðinu voru skoðaðir, hitað kakó yfir eldi, grillað kanilhækbrauð og að lokum vígt fimm nýja drekaskáta inn í sveitina. Við þökkum kærlega fyrir daginn!

Myndir eru komnar inn undir myndaalbúm.

 

 

 

27.09.2011 22:38

Flottur foreldrafundur!

Frábær foreldrafundur fór fram í Árbúaheimilinu í kvöld þar sem var vel mætt af foreldrum/forráðamönnum skáta í félaginu.

Meðal þess sem var farið yfir á fundinum var að hver sveit kynnti sitt sveitarstarf, stjórnin kynnti sig, sagt var frá hvernig nýja skátaaðferðin mun koma inn í sveitarstarfið, flott kynning frá Landsmótsstjórn á Landsmóti næsta sumar og farið var yfir fjáröflunarfyrirkomulag fyrir Landsmótið. Að lokum gæddu flestir sér að vöfflum og spjölluðu saman.

Ef einhverjir foreldrar sáu sér ekki fært að mæta í kvöld en vilja afla sér einhverra upplýsinga um þetta hafið þá samband við starfsmann á arbuar(hjá)skatar.is

 

25.09.2011 17:34

Foreldrafundur þriðjudaginn 27.september

Kæru skátar og foreldrar/forráðamenn þeirra,

Næstkomandi þriðjudag, þann 27. September klukkan 19:30 verður haldinn foreldrafundur hjá Árbúum. Á foreldrafundinum verður farið yfir ýmis atriði hvað varðar komandi starfsvetur.
Meðal þess sem verður farið yfir er:

  •         Starfandi stjórn skátafélagins kynnir sig.
  •         Allir sveitaforingjar munu kynna sig og sína starfsáætlun fyrir önnina.
  •         Sagt verður frá þeim breytingum sem nýja skátaaðferðin, sem verið er að taka upp, hefur á starf hverrar sveitar.
  •         Kynning frá landsmótsstjórn á Landsmóti 2012.
  •         Rætt verður um fjáraflanir fyrir Landsmót 2012.
  •         Önnur mál, umræður og spurningar.

Þannig að það verður sagt frá mikið af nýjum og mikilvægum hlutum og er það von okkar að einhver frá hverjum skáta sjái sér fært að mæta.

Léttar veitingar verða í boði hússins.

 

Skátakveðja,

Stjórn og sveitaforingjar Árbúa

22.09.2011 15:37

Frístundakortið er komið inn!

Allir þeir sem hafa lögheimili í Reykjavík og hafa endurnýjað skráninguna sína í félagið fyrir starfsveturinn 2011-2012 geta nú farið og úthlutað félagsgjaldinu á Árbúa í gegnum frístundakort Reykjavíkurborgar.

Við minnum á að greiða þarf annargjaldið fyrir 2.október!


Ef þið viljið greiða með frístundakrotinu en skátastarfið kemur ekki upp eruð þið beðin um að hafa samband við starfsmann á arbuar@skatar.is



08.09.2011 12:34

Haustið 2011

Allar sveitir eru nú komnar á fullt eftir frábæra byrjunarviku!

Fundartímar í skátaheimilinu eru eftirfarandi: 

Setustofa byrjar 15.september.

September er kynningarmánuður og býðst þá þeim sem hafa ekki kynnst skátastarfi áður að koma á 1 kynningarfund og prófa skátana áður en þeir skrá sig formlega og gera upp önnina.

Skráningarhnappur er hér til vinstri á heimasíðunni. Mikilvægt er að allir skrái sig í skátastarfið, nýjir eða gamlir. Þetta er gert til þess að tryggja að allar upplýsingar um viðkomandi skáta séu réttar og uppfærðar. Þú getur einnig skráð þig hér.

30.08.2011 15:55

Árbúar fara á fullt!

Nú er skátastarfið að fara á fullt á ný! 

Skráningarhnappur er kominn inn á heimasíðuna okkar og við biðjum alla um að fara inn á hana og skrá sig. Nauðsynlegt er að allir skrái sig, hvort sem þeir voru í starfi í vetur eða eru nýir. Þetta er gert til þess að tryggja að allar upplýsingar um viðkomandi skáta séu réttar og uppfærðar. Þú getur einnig skráð þig hér.

Fundartímar sveita eru alveg að verða komnir á hreint. Allir fundir hefjast í vikunni 5. -9.september.

Drekaskátar: þriðjudaga klukkan 17:15-18:30. Fyrsti fundur 6. september.

Fálkaskátar yngri: miðvikudaga klukkan 17:00-18:30. Fyrsti fundur 7. september.

Fálkaskátar eldri: miðvikudaga klukkan 17:00-18:30. Fyrsti fundur 7. september.

Dróttskátar: mánudagar klukkan 20:00-21:30. Fyrsti fundur 5. september.
Setustofa: annan hvern fimmtudag (líklegast) klukkan 19:30-21:30. Hefst 15. September

Rekkaskátar: miðvikudaga klukkan 20:00-21:30. Hefjast 14.september

Upplýsingar um annargjald og þess háttar er búið að uppfæra á heimasíðunni og má sjá hér.

26.08.2011 13:26

Vetrarstarfið að hefjast!

Vetrarstarfið er alveg að fara hefjast - aðeins 10 dagar í fyrsta skátafundinn!

Fundartímar fyrir nánast allar sveitir eru komnir inn á heimasíðuna okkar. Sjá hér.
Því miður eru fundartímar fálkaskáta eldri og rekkaskáta ekki alveg komnir á hreint en verða það vonandi sem fyrst.

Veturinn framundan er uppfullur af spennandi ævintýrum og verkefnum til að takast á við!

Hlökkum til að sjá ykkur öll aftur - eftir aðeins 10 daga!


Áskorun sem skátar fengust við í sumar: Að tjalda blindandi undir stjórn sjáandi manns


Spenningurinn magnast yfir því að vetrarstarfið sé að byrja!

Flettingar í dag: 48
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 69
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 107526
Samtals gestir: 24120
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:13:29